|
|
|
|
|
Menntun
|
|
|
|
|
|
|
|
Styrking grunnnáms á háskólastigi og bćtt ađstađa til fjarnáms
Háskólafélagiđ hefur auk fyrrgreindra verkefna veriđ í sambandi viđ Frćđslunet Suđurlands um mikilvćga samvinnu og/eđa samţćttingu Frćđslunetsins og Háskólafélagsins. Ţar verđi m.a. lögđ áhersla á ađ styrkja almennt grunnnám á háskólastigi og bćta ađstöđu til fjarnáms í fjórđungnum, í tengslum viđ ţau frćđasetur sem ţegar eru á svćđinu, ásamt ţví ađ opna möguleika á fjölbreyttara háskólanámi í fjórđungnum m.a. í samstarfi viđ Fjölbrautaskóla Suđurlands ţar sem lögđ vćri áhersla á starfstengt háskólanám (t.d. iđnfrćđi) og annađ háskólanám sem hentar vel á svćđinu (sbr. 20 gr. nýrra framhaldsskólalaga.).
Háskólafélag Suđurlands stefnir ađ ţví ađ vinna sér ţann sess í huga vísindamanna, almennings og atvinnulífs á nćstu fimm árum ađ vera framúrskarandi net sérhćfđar ţekkingarţróunar og rannsóknastarfsemi á náttúru, lífríki, mannlífi, atvinnu og menningu á Suđurlandi. Háskólafélagiđ vill efla háskólamenntun, rannsóknir og nýsköpun á Suđurlandi og ćtlar ađ vera eftirsóknarverđur kostur fyrir Sunnlendinga og ađra ţegar kemur ađ ţví ađ velja vettvang háskólanáms eđa rannsókna- og ţróunarstarfa.
Ţrátt fyrir ađ vera „miđstöđ“ ţá stefnir HfSu ađ ţví ađ vera međ dreifđa starfsemi eđa net sem nćr um allt Suđurland og nýta kosti og möguleika upplýsingatćkninnar í ţví skyni ađ byggja upp lífvćnlegt ţekkingarsamfélag á Suđurlandi öllu.
Innan Háskólafélags Suđurlands rúmast starfsemi helstu háskóla- og rannsóknastofnana í landinu auk annarra stofnana og fyrirtćkja sem starfa á sviđi rannsókna og ţekkingarţróunar og sćkja efniviđ sinn í náttúru, lífríki, mannlíf og menningu á Suđurlandi. Stefnt er ađ ţví ađ samfara neti viđamikillar háskóla- og rannsóknastarfsemi nýtist aukin ţekking til nýsköpunar og fjölbreytni í atvinnulífinu á Suđurlandi. Jafnframt verđur lögđ áhersla á ađ fjölga rannsóknastofnunum, menntastofnunum og ţjónustufyrirtćkjum innan vébanda Háskólafélagsins sem falla ađ stefnu ţess. |
|
|
|
|
| Háskólafélag Suðurlands | Fjölheimum við Tryggvagarð| 800 Selfoss | Sími: 560-2040/897-2814, Fax: 482-1381 | hfsu@hfsu.is |  |
|