Myndarlegur styrkur frá Framkvæmdastjórn Vaxtarsamnings Suðurlands
Sem fyrsta skref í uppbyggingu og eflingu háskólatengdrar starfsemi á öllu starfsvæðinu stendur háskólafélagið nú að átaksverkefni á eystri hluta Suðurlands. Verkefnið heitir Net þekkingar frá Markarfljóti að Skeiðarársandi. Framkvæmdastjórn Vaxtarsamnings Suðurlands ákvað nýlega að styrkja þetta átaksverkefni um röskar fjórar milljónir króna. Búið er að ráða tímabundið starfsmann og er honum m.a. ætlað að efla styrkleikana og byggja upp svæðisbundna starfsemi á háskólastigi. Þegar verkefninu lýkur er ætlunin að fyrir liggi rökstuddar áætlanir um rannsókna- og þróunarstarfsemi á sviðum þjóðfræða, eldvirkni og nýrra lífrænna orkugjafa sem getur nýst á innlendum sem erlendum vettvangi.
Fyrsti aðalfundur Háskólafélags Suðurlands ehf verður haldinn miðvikudaginn 10. júní 2009 kl. 14 í húsnæði félagsins, Glaðheimum, Tryggvagötu 36 á Selfossi.
Iðnfræði og byggingarfræði
mánudagur, 15. jún
Í kvöld, mánudaginn 15. júní 2009 kl. 20, verður haldinn kynningarfundur í sal Fjölbrautaskólans á vegum Háskólafélags Suðurlands og Háskólans í Reykjavík.
Fimmtudaginn 13. ágúst næstkomandi mun verða haldinn kynningarfundur um hugmyndir aðjarðfræðigarði (geopark) á svæði sem nær yfir hluta Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu. Á fundinum verður jarðfræði svæðisins kynnt ásamt hugmyndinni að jarðfræðigarði á svæðinu. Einnig verður á fundinum ráðgjafi frá European Geopark Network, Patrick McKeever, sem mun kynna starfsemi samtakanna um evrópska jarðfræðigarða. Gert er ráð fyrir góðum tíma í fyrirspurnir fundargesta.
Fundurinn verður haldinn eins og áður segir fimmtudaginn 13. ágúst í félagsheimilinu Leikskálum í Vík, klukkan 14:00.
Hvetjum alla til að mæta, sérstaklega aðila í ferðaþjónustu á svæðinu.
Stjórn átaksverkefnis Háskólafélags Suðurlands
„Net þekkingar frá Markarfljóti að Skeiðarársandi“
Fróðlegur fundur í Vík
föstudagur, 14. ágú
Fimmtudaginn 13. ágúst var haldinn kynningarfundur í Leikskálum í Vík um hugsanlega stofnun jarðfræðigarðs (geopark) í Vestur-Skaftafellssýslu og eystri hluta Rangárvallasýslu.Háskólafélag Suðurlands beitti sér fyrir sérstöku átaksverkefni í fyrra varðandi eflingu atvinnulífs á þessu svæði og hefur hugmyndin um jarðfræðigarð verið þróuð á þeim vettvangi.
Rögnvaldur Ólafsson forstöðumaður Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands stýrði fundinum en hann er bæði stjórnarmaður í Háskólafélaginu og einnig í verkefnisstjórn átaksverkefnisins.
Lovísa Ásbjörnsdóttir jarðfræðingur og forstöðumaður Surtseyjarstofu flutti erindi um jarðfræði svæðisins og stöðu þess í jarðfræði Íslands og tengslum þess við jarðfræði Norður-Atlantshafsins varðandi landrek og gosvirkni.Að hennar mati er svæðið einstakt hvað varðar fjölbreytni eldstöðva og gosefna ásamt óvenju miklum jökulmenjum af ýmsu tagi.Þannig eru t.d. móbergshryggir myndaðir við sprungugos undir jökli á síðari hluta ísaldar áberandi í landslaginu norðan Mýrdalsjökuls en slíkir hryggir finnast ekki annars staðar á jörðinni og eru því einstakir á heimsvísu.
PatrickMc Keever jarðfræðingur og fulltrúi samtaka jarðfræðigarða flutti síðan tölu um hugtakið jarðfræðigarð, tilurð þessarar starfsemi og hvernig hún hefur þróast.Samtök evrópskra jarðfræðigarða voru stofnuð árið 2000 af fjórum svæðum en nú tilheyra samtökunum 34 svæði í þrettán Evrópuríkjum.Þá hafa samtökin gert samkomulag við UNESCO, eina af stofnunum Sameinuðu þjóðanna, þess efnis að sjá um gæðavottun á sambærilegum görðum annars staðar í heiminum.Alls eru jarðfræðigarðarnir nú 57 með vottun UNESCO og fer ört fjölgandi.Umsóknarferli í þessu sambandier a.m.k. eitt ár og ef svæði er samþykkt sem jarðfræðigarður er það til fjögurra ára í senn.Gæðakröfur eru ríkar í þessu sambandi og nokkur dæmi þess að jarðfræðigarðar hafi misst vottun, a.m.k. tímabundið.
Patrick Mc Keever lagði mikla áherslu á það í máli sínu að jarðfræðigarðar byggðust ekki einungis á merkilegri jarðfræði heldur samspili hennar við nýtingu á sjálfbæran hátt, þ.e. með langtímasjónarmið í huga.Mörg dæmi væru um að atvinnulíf á svæðum jarðfræðigarða hefðu eflst með tilkomu þeirra, sérstaklega á sviði ferðamennsku og fræðslu hvers konar í því sambandi.Ein af forsendum þess að svæði sé samþykkt sem jarðfræðigarður er að fyrir liggi ásetningur íbúanna um að gera jarðfræði og menningararfi svæðanna hátt undir höfði þannig að fleiri nái að njóta þessara auðlinda án þess að spilla þeim.Hvað kostnað varðar kom fram að æskilegast væri að byggja sem mest á þeirri starfsemi sem fyrir er á svæðinu og ýta undir samvinnu aðila, t.d. ferðaþjónustuaðila og sveitarstjórna.Þá er mikilvægur óbeinn stuðningur Samtaka jarðfræðigarðanna með því að miðla reynslu milli svæða.
Í umræðum að loknum framsöguerindum kom fram að í dag einkennist ferðamennska á svæðinu m.a. af því að beina ferðamönnum á tiltekna ferðamannastaði með sérstaka náttúru en mikið skorti á að ferðamaðurinn fái útskýringar og kynningu á ýmsu í náttúru staðanna.Starfsemi jarðfræðigarðanna einkennist hins vegar af áherslu á þessa þætti.Þetta skapar störf, ferðamaðurinn dvelur lengur á svæðinu og skilar því meiru inn í hagkerfið á staðnum.Ítarlegar samtímaheimildir um Skaftáreldana geta t.d. verið óþrjótandi uppspretta tengingar mannlífs í héraðinu og þessara einstöku náttúruhamfara sem einnig höfðu áhrif langt út fyrir landsteinana.Áherslur af þessu tagi í ferðamennsku eru ekki útilokandi heldur miklu fremur viðbót við það sem fyrir er.Annað sem einkennir starfsemi jarðfræðigarðanna er að lögð er áhersla á það að þjálfa íbúana sjálfa til að túlka jarðfræðina og söguna fyrir ferðamönnum og öðrum gestum garðsins.Markaðssetning matvæla og handverks úr héraði hefur einnig víða notið mjög góðs af samvinnu við jarðfræðigarða.
Nú er það heimamanna að taka afstöðu til þess hvort stefna beri að stofnun jarðfræðigarðs á svæðinu og eftir atvikum að leita eftir stuðningi í því sambandi.Stefna Háskólafélagsins er að leitast við að vinna með styrkleika svæðisins.Miðsuðurland og Suðausturland hefur búið við fólksfækkun og fremur einhæft atvinnulíf á undanförnum áratugum en á fundinum kom skýrt fram að á sviði jarðfræðitengdrar ferðamennsku gæti svæðið haft lykilstöðu og tekið forystu á þessu sviði.
Sigurður Sigursveinsson
Nýr fjarkennslu- og fjarfundabúnaður
fimmtudagur, 3. sep
Stærðfræðikennsla í Glaðheimum
þriðjudagur, 8. sep
Málþing um rannsóknir og vígsla Glaðheima
miðvikudagur, 23. sep
Fjölsóttur hátíðisdagur
mánudagur, 28. sep
Ávarp menntamálaráðherra
laugardagur, 3. okt
Kynbundið ofbeldi, vanræksla og ill meðferð (10 ECTS einingar) - kennt á vormisseri 2010
þriðjudagur, 27. okt
Afmælisþing Skógasafnsins
þriðjudagur, 27. okt
Fjarnám hjá Endurmenntun HÍ á vorönn 2010
miðvikudagur, 4. nóv
Byrja í háskóla í janúar 2010?
þriðjudagur, 10. nóv
Fjarnám á Selfossi í mannauðsstjórnun
þriðjudagur, 10. nóv
Verkefni Háskólafélagsins í Vaxtarsamningnum
þriðjudagur, 17. nóv
Glærur af málþingi í Skógum
mánudagur, 23. nóv
Námskeið í gerð Leonardó umsókna
mánudagur, 11. jan
Fjarnám á háskólastigi á Suðurlandi
mánudagur, 11. jan
Ráðstefna um landnotkun 28. janúar 2010
þriðjudagur, 12. jan
Aftur kynning á Leonardó
miðvikudagur, 13. jan
Klasasprengja !!!
þriðjudagur, 2. feb
Fjarfundur um gerð umsókna í Comenius
fimmtudagur, 4. feb
Fyrirlestur frá Náttúrustofu Suðurlands
mánudagur, 22. feb
Námskeið um stofnun matvælafyrirtækja
þriðjudagur, 23. feb
Námskeið í markaðssetningu á netinu
þriðjudagur, 23. feb
Kynning á fjarnámi við HA
föstudagur, 26. feb
Fjölmargir ferðamálastyrkir á Suðurland
fimmtudagur, 4. mar
Vel sótt kynning frá Háskólanum á Akureyri
föstudagur, 5. mar
Ráðstefna um Geopark í Noregi
föstudagur, 19. mar
Átaksverkefni í Uppsveitunum
mánudagur, 22. mar
Skýrsla um átaksverkefnið
miðvikudagur, 24. mar
Uppeldisstöðvar þorskseiða
miðvikudagur, 24. mar
Nafnasamkeppni um Geopark
þriðjudagur, 30. mar
Endurtekin kynning á fjarnámi við Háskólann á Akureyri
fimmtudagur, 8. apr
Aðalfundur Háskólafélags Suðurlands
fimmtudagur, 13. maí
Góð afkoma Háskólafélagsins
miðvikudagur, 19. maí
Kveðja til sveitarstjórna og íbúa í nágrenni Eyjafjallajökuls